

BATNANDI HEIMUR?
Ég er alltaf að átta mig betur og betur á því að heimur batnandi fer… í alvöru!
Ég verð að viðurkenna að þegar ég sá þessa stráka á Bókamessunni í Ráðhúsinu, þar sem þeir voru að kynna Study Cake og sýna fólki hvernig þetta virkar, hafði ég mínar efasemdir. Hvað vita þeir um bóklestur barna? Hvað vita þeir um börn og snjallsíma? Mín börn lesa bækur… ég þarf enga hjálp til þess að halda bókunum að þeim.
En hið ótrúlega kom í ljós og ég varð, eins og svo oft áður þegar ég er uppfull af fordómum, að éta þetta allt saman ofan í mig.
Fyrir 20 eða jafnvel bara 10 árum síðan gat almenningur varla gert sér í hugarlund þá tækni sem til er í dag. Þegar ég var 10 ára voru allar freistingar nútímans ekki til staðar. Ef mig langaði til dæmis að heyra uppáhalds lagið mitt þá hringdi ég og bað um óskalag í útvarpinu. Tímunum saman sat ég svo tilbúin á Rec takkanum til þess að festa það um aldur og ævi á segulbandsspólu. Þú kannast kannski við þetta.
Við erum að takast á við allt aðra tíma í dag en áður fyrr. Snjalltækin eru að taka yfir heiminn, það er bara staðreynd. Rannsóknir sýna fram á að fjöldi nettengdra tækja er vaxinn fram úr heildarfjölda jarðarbúa. Þá kemur ákveðin spurning upp í hugann, eigum við endalaust að vera að berjast við þær breytingar sem eru að ryðja sér til rúms í samfélaginu eða eigum við að taka þeim fagnandi og nýta okkur þessa tækniþróun til þess að stækka kökuna? Grundvallarhugsjón Study Cake er sú að ekki sé skynsamlegt að reyna að loka á snjallsímana og tölvurnar. Réttara sé að notfæra sér breytta tíma til þess að hjálpa fólki að bæta sig og læra meira.


SNJALLSKRÍMSLIÐ
Hraðinn í þjóðfélaginu og breytingarnar sem orðið hafa undanfarin ár eru gríðarlega miklar. Dóttir mín 10 ára elst upp við allt annan raunveruleika en við foreldrarnir gerðum, allt það sem hugurinn girnist má nálgast með einum smelli. Börn þurfa að höndla margt sem foreldrar hafa jafnvel enga hugmynd um. Þrátt fyrir þessar freistingar hefur mér tekist að opna huga hennar fyrir bóklestri. En samt sem áður dregur heimur snjallskrímslisins hana að sér eins og segulstál. Kannski ekki skrýtið því sá heimur matar þig stöðugt með tilbúnu áreiti og fyrirframgefnum uppskriftum að lífinu.
En geta þessir heimar spilað í takt? Þegar dóttir mín opnaði Study Cake sá hún sér til mikillar gleði fullt af bókum sem hún var búin að lesa. Hún hófst handa við að safna heilasellum og leið ekki á löngu þar til hún var búin að spæna í gegnum hundruði spurninga umkringd bókafjalli. En þarna inni kynntist hún líka nýjum bókum og krafðist þess að fá að nota afmælispeningana sína í bókakaup. Mamman rölti út í bókabúð hæstánægð með aukinn áhuga dótturinnar á bóklestri. Þarna var hún farin að taka heim bókmenntanna fram yfir áreiti snjallskrímslisins.
Ástæða þess liggur að hluta til í raunheimaverðlaununum sem börnin vinna sér inn í Study Cake. Núna heyri ég marga vini mína andvarpa… já þarna byrja þeir að plokka peningana úr veskinu mínu. En nei ekki aldeilis, þarna liggja einmitt leynd tækifæri til þess að forgangsraða í þágu samveru foreldra og barna. Og veistu, börn gleðjast yfirleitt meira yfir einfaldari hlutum. Þegar rannsókn var gerð á því hvaða hlutir börn og unglingar vilja helst gera með foreldrum sínum kom ýmislegt í ljós. Þau vilja nefnilega bara verja tíma með okkur fullorðna fólkinu. Þau nefndu samveru við matarborðið, að spila á spil, tala saman og spjalla, fara í gönguferð og sund sem óskastundir fjölskyldunnar.
Ótrúlegt, með þessu snjallsímaforriti get ég slegið tvær eða jafnvel þrjár flugur í einu höggi. Aldrei hefði ég trúað því að tækninýjungar gætu aukið á ánægjulegar samverustundir með dóttur minni.
Markmið Study Cake er að ýta undir lestur ungs fólks, en ég get staðfest það að Study Cake gerir svo miklu meira en það. Það gerir lesturinn svo sannarlega skemmtilegri á mínu heimili sem, eykur áhugann á lestri ólíkra bóka og rúsínan í pylsuendanum… fjölgar gæðastundum fjölskyldunnar svo um munar!
- Guðný Kjartansdóttir