Barnabækur í sýndarveruleika (Aprílgabb)

Við hjá Study Cake höfum alltaf stefnt að því að halda þróun barnabóka í takt við það sem má finnast á öðrum sviðum mannlegrar sköpunar. Í dag kynnum við stoltir til sögunnar næsta skref okkar í þeirri þróun.

Enginn vafi liggur á því að sýndarveruleiki í einu formi eða öðru mun hafa ólýsanleg áhrif á það hvernig við mennirnir upplifum skemmtun á næstu árum og áratugum. Bíómyndir, tölvuleikir og önnur form skemmtunar munu gjörbyltast og höfundar, leikstjórar og forritarar fá glænýtt leiksvið til þess að tjá sköpunargáfu sína og koma hugmyndum sínum á framfæri.

Bókin er eitt elsta og merkilegasta tjáningarform mannsins og hefur spilað lykilhlutverk í þeirri þróun sem hefur hingað til einkennt vegferð mannkyns. Sama hvort talað er um Frönsku Byltinguna eða Rómarveldi á tímum Markúsar Árelíusar, þá er sameiginleg þekking forfeðra okkar að mestu leiti fólgin í þeim ritum sem þeir skildu eftir sig.

Þó er það öllum mönnum augljóst að bókin hefur í sjálfu sér lítið þróast á þessum tíma. Kynntar hafa verið smávægilegar nýjungar á borð við raf- og hljóðbækur en upplifunin er enn að mestu leiti sú sama og hún var þegar fyrsta orðið var ritað á sléttum Mesópótamíu.


… en ekki lengur. Við hjá Study Cake höfum unnið hörðum höndum að því að bjóða notendum okkar upp á lestur í sýndarveruleika. Börn á öllum aldri munu geta lifað sig inn í lesturinn eins og aldrei áður og í framhaldinu svarað skemmtilegum spurningum um bækurnar, lífið og tilveruna.

Barn sem hefur bókstaflega sokkið inn í lesturinn

Hægt verður að tengjast uppáhalds sögupersónunum sínum á persónulegan og náin hátt og jafnvel verður í ákveðnum bókaflokkum hægt að hafa áhrif á framvindu sögunnar.

Við reiknum með því að sá tími sem krakkar eyða í lesturinn muni stóraukast þegar þau sækja Study Cake VR með Oculus eða Samsung sýndarveruleikagræjunum sínum. Bækurnar verða aðgengilegar á sama verði og úti í bókabúð en upplifunin er allt önnur.

Ljósmynd tekin beint í gegnum par af Oculus gleraugum

Eftirspurnin gífurleg

Nú hefur þróunin átt sér stað í yfir þrjá mánuði og hefur á þeim tíma fjöldinn allur af fjölskyldum prufað hugbúnaðinn. Nánast undantekningarlaust hefur spenningur barnanna verið það mikill að foreldrar hafa strax sett sig á biðlistann, en leikurinn kemur út á sama tíma og hægt verður að kaupa sýndarveruleikagleraugu í hefðbundnum raftækjaverslunum á Íslandi.

“Við erum handvissir um að þetta sé framtíð barnabókanna og að heitasta jólagjöfin árið 2016 verði 6 mánaða áskrift að Study Cake VR.” -Kjartan Þórisson, framkvæmdarstjóri Study Cake.

Ísland er frægt fyrir þáttöku sína í þróun hugbúnaðar á sviði sýndarveruleika, en dæmi um önnur slík íslensk fyrirtæki eru Mure VR, Sólfar, CCP og núna Study Cake.

Hörður Guðmundsson, fjármálastjóri Study Cake, að prófa snemmbúna frumgerð af Study Cake VR